Ég hef áhyggjur af því að ég hugsi ekki nógu vel um bílinn
Ég flýti mér út úr bílnum því að hann er svo óhreinn
Þegar ég stíg upp í bílinn er bleyta í gólfinu
Það er stöðug ýldulykt í bílnum
Það er erfiðara og erfiðara að þvo bílinn
Stundum er hurðin á bílnum frosin föst eða ég kem ekki lyklinum í skrána
Ég sé ryð hér og þar í lakkinu
Álfelgurnar eru orðnar gráar og ljótar.
Vissir þú að hjá MASSA...
Er sett fljótandi bón undir lista, í kverkar og samskeyti. Þetta er mjög tímafrek aðgerð en nauðsynleg því þar er ryðhættan mest
Allir gúmmílistar eru siliconvarðir. Þessi vörn kemur í veg fyrir að gúmmíið harðni og að listarnir frjósi fastir
Það eru á milli 5 til 8 vinnutímar í meðal Alþrifspakka.
Vörn er mikilvæg!
Svo má ekki gleyma að verja bíla fyrirtækisins fyrir þeirri miklu tæringu sem er í vestfirska loftslaginu með bónhúð frá MASSA
Ryðið í bílnum hverfur ekki að sjálfu sér og ef ekkert er gert verður mikið tjón
Það er ekki sjálfsagt að bílar ryðgi! Hjá Massa eru eingöngu notuð níðsterk og endingagóð bón sem ekki bara vernda lakkið og fegra bílinn heldur auðvelda þrifin í leiðinni.